Götustrákurinn

mánudagur, apríl 30, 2007

My celebrity mom and the crazy germans....

Jæja, nú er það komið í ljós að hin móðir mín, hún Eva, er hönnunar snillingur (vissi það reyndar alltaf). Á laugardaginn fór ég í smáralind þar sem að hún tók þátt í úrslitum hönnunarkeppni Hagkaupa og haldiði að stelpan hafi ekki lent í öðru sæti!!! Til hamingju með það Eva mín ;)
Við fögnuðum auðvitað vel á laugardagskvöldið og tók ég upp á því að vera fulli kallinn, semsagt, mjög gaman :D


Rak augun í þessa skemmtilegu og mjög svo upplýsandi grein á mbl.is:

"Ný rannsókn bendir til þess, að fólk sem var uppi á steinöld hafi lifað fjörugu kynlífi. Breskur fornleifafræðingur segir að fólk á þessum tíma hafi stundað hópkynlíf, haldið kynlífsþræla og notað kynlífsleikföng. Þá séu einnig vísbendingar um klæðskiptinga."

Fornleifafræðingar hafa semsagt fundið styttur í hellum sem þeir segja að sýni fram á þennan "saurlifnað". Og hvar haldið þið að þessi hellir hafi verið? Munið það að við erum að tala um hópkynlíf og kynlífsþræla! Jú jú, semsagt, þessi hellir fannst auðvitað í Þýskalandi, hvar annars staðar en í þýskalandi gæti svona hafa gerst á steinöld?!? Og hugsið ykkur, eftir milljón ár þegar maðurinn er útdauður og nýr kynstofn tekinn yfir hugsið ykkur subbuskapinn sem myndi finnast í fornleifauppgröftum þar sem núna er þýskaland... við erum að tala um endalaust sóðalegt dót sko. Og þá á sá kynstofn, kannski háþróaðir selir eða eitthvað eftir að halda að ALLIR menn (konur eru líka menn) hafi verið perrar og haft gaman af hardcore þýsku kynlífi og kúkaklámi.

Það er greinilegt að það verður að stöðva þjóðverjanna og eyða öllum ummerkjum um kúkaklám til að koma í veg fyrir að næsti ráðandi kynstofn haldi að allir menn hafi verið perrar. Ég meina, kannski verða beinagrindurnar okkar grafnar upp og settar á safn og svo verður texti sem segir kannski "Þessi maður/kona lifði á tímum blablabla og stundaði að líkindum gróft kúkakynlíf" Og það verður allt þjóðverjum að kenna að ég eða ÞÚ verðum sakaðir/sökuð um svoleiðis.

Allavega, nenni ekki að bulla meira. Bleh bleh..

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Betra seint en aldrei

Alveg magnað hvað ég er latur við að blogga. Samt svosem ekki mikið að segja frá, undanfarið búinn að njóta lífsins á Kleppi... Þess á milli hef ég gefið mér tíma til að aðstoða Evu og Bjössa við að rífa niður veggi og sparsla, pússa og mála, og þau kunna sko á strákinn, þau gefa mér bara bjór og láta mig hafa viðeigandi verkfæri og sleppa mér bara lausum, og þó ég hafi lamið gat í vegg þar sem ekki átti að vera gat var það ekkert sem var ekki hægt að sparsla upp í!!! Og núna þegar það er allt tilbúið ligg ég bara í lausu lofti og veit ekkert hvað á að gera af mér... Nema auðvitað mæta í vinnunna.


Og þegar maður er á lausu og flestar stúlkurnar sem ég vinn með eru líka á lausu, er lítið gert annað en að daðra, daðra daginn inn og út, inn og út, inn og út... Nei segi svona, ég er alveg rosalega alvarlegur í vinnunni, mér stekkur ekki bros á vör og set gáfulega svipinn upp við sem flest tækifæri. Það er alveg satt og eins og ofvirka sjúkraliðakonan segir að allt sem hún segir er satt og rétt þá er allt sem ég segi líka alltaf satt og rétt... eða allavega haganlega breytt í mína þágu á sem trúverðugastan hátt í hvert og eitt skipti.


Svo var ég að lesa á MBL.IS að löggan ætli næstu þrjá daga að vera með lögreglubíla með blikkandi ljós á einhverjum þremur gatnamótum í borginni til þess að... til þess að... ég veit ekki til hvers!?! Til hvers í ósköpunum eru þeir að gera þetta? Hafandi bílanna í gangi til þess eins að flagga einhverjum bláum ljósum, voðalegir töffarar eru þetta. Þeir ættu að finna eitthvað betra við tímann að gera, eins og til dæmis að drepa á lögreglubílunum og fara að gróðursetja tré til að koma til móts við alla mengunina sem þeir sleppa með því að hafa bílana kyrrstæða í gangi á meðan þeir sitja fyrir grunlausum bílstjórum til þess eins að sekta og gefa punkta.


Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af mengun. Ef allt sem vísindamenn segja um að allt sé að fara til fjandans held ég að það sé ekki hægt að gera mikið nema læra að lifa með því... og kannski heimsækja Amsterdam áður en þar verður ekkert nema saltur sjór.

Bleh... Hef ekkert meira að segja, þannig að bless bless!